Endurgreiðslustefna
Hvenær og hvernig Pareto lausnir endurgreiðir.
Áskriftir að ehf
Áskrift er greidd mánaðarlega fyrirfram. Við uppsögn er ekki endurgreitt fyrir mánuð sem er hafinn.
Hafi verið rukkað ranglega eða tvisvar endurgreiði ég mismuninn innan 14 daga.
Liggi þjónustan niðri í meira en 24 klukkustundir samfellt vegna atvika sem Pareto ber ábyrgð á getur áskrifandi óskað eftir hlutfallslegri endurgreiðslu.
Miðar á viðburði
Um endurgreiðslu miða gilda skilmálar miðakaupa. Falli viðburður niður er miðinn endurgreiddur að fullu.
Réttur neytenda
Neytendur eiga 14 daga rétt til að falla frá samningi í fjarsölu samkvæmt lögum nr. 16/2016 um neytendasamninga, nema þjónustan sé hafin að beiðni þeirra. Rétturinn á ekki við um miða á viðburði á tilteknum degi.
Hvernig óskað er eftir endurgreiðslu
Sendu póst á kristofer@paretolausnir.is. Endurgreitt er á sama greiðslukort og greitt var með.